Tíðindi

Ríkiskaup braut lög á Iceland Express

  15/08/2012No Comments

Ríkiskaup braut lög þegar stofnunin tók tilboði Icelandair framyfir tilboð Iceland Express í opinberu útboði í fyrra. Þetta er niðurstaða Kærunefndar útboðsmála.

Brotið á Iceland Express í opinberu útboði að mati Kærunefndar útboðsmála

Var tilboði Icelandair tekið þó allt að 200 prósenta munur væri á tilboðum þess og samkeppnisaðilans Iceland Express auk þess sem ekki þótti ástæða til að loka fyrir punktasöfnun ríkisstarfsmanna eins og tilboð Icelandair hljóðaði upp á og hefur alla tíð gert og skekkir alla samkeppnisstöðu við útboð.

Segir í úrskurði Kærunefndar að tilboð kæranda hafi verið hagkvæmasta tilboð sem barst í hinu kærða útboði og að verulega miklu hafi munað á tilboði þeirra og Icelandair.

Félag atvinnurekenda skoðar nú með hvaða hætti ríkið skal bæta Iceland Express tjón sem fyrirtækið hefur orðið fyrir vegna þessa.