Tíðindi

Vafasöm flugtilboð vekja ekki áhuga Neytendastofu

  16/08/2012No Comments

Enginn áhugi virðist vera af hálfu Neytendastofu að rannsaka hvort auglýst flugtilboð flugfélaganna eru raunverulega í boði hverju sinni.

Neytendastofa á að gæta þess að ekki sé svindlað á neytendum í landinu en áhuginn takmarkaður varðandi flugtilboð

Eins og Fararheill.is hefur greint frá eru af og til auglýst flugtilboð sem hvergi finnast þegar eftir er leitað. Nú síðast fann ritstjórn ekki auglýst tilboðsverð á flugi til þriggja af sex borgum sem Iceland Express auglýsti á tilboði í Fréttablaðinu eins og sjá má hér.

Sökum þess að flugfélögin, og reyndar ferðaskrifstofurnar líka, tiltaka aðeins að um takmarkan sætafjölda sé að ræða á hverju tilboði án þess þó að tiltaka fjöldann nákvæmlega eða þær dagsetningar sem um ræðir er ekkert sem kemur í veg fyrir að aðeins eitt einasta sæti sé í boði á umræddu tilboði. Eða alls ekkert ef út í það er farið.

Ekki skal neitt fullyrt um að slíkt sé gert en meðan fjöldi tilboðssæta er ekki ljós mun alltaf leika vafi. Fararheill kannaði hvort Neytendastofa hefði skoðað eða hygðist skoða málið en engin svar hefur borist við þeirri fyrirspurn þrátt fyrir óskir þar um.