Tíðindi

Alicante og Berlín á tilboði

  13/08/2012desember 24th, 2013No Comments

Góðu heilli streyma ferðatilboðin áfram út frá flugfélögunum. Nú býður Wow Air sérkjör á ferðum til Berlínar og Alicante en ferðatíminn þó skilyrtur.

Tilboðin eru í boði til miðnættis í kvöld en um er að ræða aðra leiðina til Alicante á 19.900 krónur og aðra leið til Berlínar á 15.900. Innifalin eru öll gjöld og skattar.

Ferðatíminn er þó takmarkaður í báðum tilfellum. Til Alicante er aðeins komist á þessum prís frá 22. ágúst til 20. september og til Berlínar er tilboðið aðeins í boði vegna ferða milli 14. ágúst og 14. september.

Heimasíða Wow Air hér.