Ritstjórn Fararheill.is hefur lengi grunað að flugfélögin og ferðaskrifstofurnar fari afskaplega frjálslega með það sem flokkað er sem „flugvallaskattar og önnur gjöld“ í smáa letrinu enda enginn opinber eftirlitsaðili að fylgjast með og auðvelt að hirða þar nokkrar aukakrónur svo lítið beri á. Nú virðist komin staðfesting á því að svo sé. Hvernig annars breytast flugvallaskattar og önnur gjöld þrívegis í minnst þremur nákvæmlega eins ferðum ferðaskrifstofunnar Heimsferða?
Um er að ræða golfferðir Heimsferða til Spánar í vetur. Í nokkrum þeim ferða er flogið til flugvallarins við borgina Jerez í Andalúsíu.
Það er gott og blessað. Það sem hins vegar er merkilegt er að „flugvallarskattar og önnur gjöld“ í þrjár brottfarir Heimsferða frá Keflavík til Jerez og heim aftur á þremur mismunandi dagsetningum eru öll misjöfn.
Þann 29. september er ferð í boði til Spánar. Flogið er með Icelandair og ofangreindir skattar og gjöld á tvo einstaklinga þá ferðina kosta alls 20.400 krónur eða 10.200 á haus.
Víkur þá sögunni til næstu ferðar til Jerez þann 6. október en þá er flogið út með Icelandair en heim aftur með vélum móðurfélagsins Primera Air. Flugvallarskattarnir og aukagjöldin kosta þá allt í einu aðeins 13.800 krónur fyrir tvo eða 6.900 krónur á mann. Það er 6.600 króna munur á rúmri viku.
Ekki er öll sagan sögð. Þriðja ferðin er í boði þann 16. október sömu flugleið gegnum sömu flugvello en nú er það Primera Air sem flýgur fólkinu út en Icelandair sér um heimflugið. Og viti menn! Flugvallarskattar og aukagjöld í þá ferð kosta tvímenningana 16.400 samanlagt eða 8.200 á kjaft.
Nú er það svo að flugvallarskattar á flugvöllum er fastur kostnaður og breytist ekki sísona. Þaðan af síður er misjafnlega langt til Jerez á Spáni og heim aftur svo eldsneytiskostnaður ætti að vera tiltölulega svipaður líka. Öryggisgjöld þarf jú að greiða og fyrir alla þjónustu á flugvöllunum en aftur er þar um að ræða fastan kostnað sem ekki flakkar upp og niður eins og íslensk króna á sterum.
Gaman væri að flytja skýringu ferðaskrifstofunnar á þessum undarlegheitum en þar sem forstjórinn hefur hingað til ekki sýnt því áhuga að ræða við Fararheill þá gefum við okkur að sama sé uppi á teningnum nú.










