Tíðindi

Portúgal brennur

  19/07/2012No Comments

Eins og gríðarleg efnahagslægð væri ekki nóg! Nú glíma Portúgalir við ægilega skógar- og kjarrelda bæði í Algarve héraði nálægt borginni Tavira og ekki síður á hinni geysifallegu eyju Madeira.

Litlu mátti muna að skógareldar á Madeira í Portúgal næðu til höfuðborgarinnar Funchal eins og sjá má á myndinni. Hættan er þó ekki liðin hjá

Brenna nú stór svæði á báðum stöðum og er miklum þurrki kennt um en lítið sem ekkert hefur rignt í sunnanverðri Portúgal um hartnær þriggja mánaða skeið meðan hitinn hefur rúllað í 40 gráður nokkuð reglulega.

Samkvæmt fréttaveitu Reuters ógnuðu eldarnir höfuðborg Madeira um tíma en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd mátti ekki miklu muna að eldur bærist í hús og heimili í Funchal. Borgin er líka aðal ferðamannastaður eyjarinnar og tjónið yrði ægilegt ef ekki tekst að halda eldi frá borginni. Góðar líkur eru þó taldar á að það takist áfram.

Portúgölsk stjórnvöld hafa sent slökkviliðsmenn frá meginlandinu til Madeira því 300 slökkviliðsmenn þar rétt ráða við að halda eldinum í skefjum en ekki mikið meira.

Ritstjórn hefur þrívegis heimsótt Madeira sem er margfalt fallegri en nálægar Kanaríeyjur Spánar. Mikil synd að eldar eyðileggi þar gróður og hver má vita hvað annað.

Staðan er betri nálægt Tavira því eldarnir þar eru minni og fleiri slökkviðiðsmenn til taks. Ekki eru þó heimili talin í hættu eins og raunin er á Madeira.