Þýskir fjölmiðlar ganga svo langt að tala um „stórslysið“ í Berlín en það á meira skylt við klúður en slys. Þar vísa þeir til þess að hinn glænýi Brandenburg flugvöllur í Berlín sem opna átti formlega eftir tvær vikur verður ekki starfhæfur fyrr en eftir níu mánuði.
Þýska slúðurblaðið Bild fullyrti fyrir viku síðan að þetta væri raunin með hinn fullkomna flugvöll sem er ætlað að leysa af hólmi tvo gamla og í raun úrelta flugvelli Berlínar; Tegel og Schonefeld. Því var tekið með miklum fyrirvara því fram að því héldu yfirvöld fast við áætlun sína um að opna völlinn fyrstu vikuna í júní.
En fréttirnar reyndust réttar og það staðfesti borgarstjóri Berlínar á fimmtudaginn var með tilkynningu. Er þetta talin gríðarleg hneisa því ekki aðeins er þörfin brýn og stærstu flugfélög Þýskalands gert ráð fyrir að hefja þar starfsemi strax í júníbyrjun heldur er þetta í annað skiptið sem miklar tafir verða á opnun flugvallarins. Upphaflega átti völlurinn að opna í nóvember 2011.
Forstjórar Lufthansa og Airberlin segja ljóst að tap þeirra flugfélaga vegna frekari tafa hlaupi á tugum milljarða króna enda bæði gert ráð fyrir aukinni þjónustu og flugferðum með tilkomu nýja vallarins.
Der Spiegel segir frá því að undirbúningur og hönnun þessa „fullkomnasta“ flugvallar heims, eins og byggingaaðilar vilja meina, sé þó langt í frá sérstaklega fullkominn. Þegar hefur komið í ljós að innritunarsvæði flugvallarins nýja dugar alls ekki fyrir þá umferð sem ráð er fyrir gert að verði um völlinn. Lausnin á því er að reisa sérstök innritunartjöld þar sem farþega smærri flugfélaga fái afgreiðslu. Þá er farangurskerfi vallarins allt of lítið líka og engin lausn á því enn fundin.
Iceland Express er eitt þeirra flugfélaga sem ráðgert hafði að fljúga til Brandenburgarflugvallar í sumar en nú er ljóst að það gengur ekki eftir. Fararheill hefur bent á að þetta getur haft í för með sér umtalsvert lengri afgreiðslutíma á Tegel og Schonefeld flugvöllum næstu mánuði og máttu hvorugir við því.






