Pistlar

Sannleikurinn um Denver

  18/05/2012No Comments

Ef marka má Morgunblaðið, Vísi, Bylgjuna og aðra stóra fjölmiðla sem ávallt er boðið með þegar Icelandair kynnir nýjan áfangastað þá er Denver algjörlega stórkostleg á alla kanta. Þar er svo mikið um að vera, veðrið snilld allt árið, stutt á skíði og fjöll, hræódýrt að versla og þar líður öllum vel.

Hefðbundin þriðjudagstraffík á I-25 þjóðveginum út úr Denver. Líklega er best að hafa tímann rækilega fyrir sér ætli fólk á rúntinn

Þó ritstjórn Fararheill sé vel sigld þekkjum við Denver ekki og þar sem vegvísar okkar dekka aðeins borgir sem við þekkjum af persónulegri reynslu er ómögulegt að fella dóm um borgina með heiðarlegum hætti.

Við trúum þó ekki að Denver sé eins stórkostleg og íslenskir blaðamenn vilja vera láta enda fáir þeirra vanir að bíta í höndina sem gefur. Frí ferð og uppihald til Denver eða annarra borga þýðir að mjög vinsamleg frétt eða grein fylgir í kjölfarið og eru á því sjaldnast undantekningar á Íslandi.

Það er hins vegar auðvelt að finna út sannleikann með því að leita á náðir heimamanna sjálfra. Allmargar síður á vefum eins og Tripadvisor, Virtual Tourist, Yahoo, Wikianswers og fleirum gefa glögga mynd af raunveruleikanum eins og hann blasir við ferðafólki og heimamönnum.

Sé það jákvæða og neikvæða tekið gróflega saman er niðurstaðan þessi:

JÁKVÆTT: Fínar verslanir og fjölbreyttar – fjallasýnin frá borginni – fólk almennt vinalegt – fjörugt næturlíf – stutt í úrvals útivistarsvæði í Klettafjöllum.

NEIKVÆTT: Minni háttar glæpir algengir –  erfitt að anda sökum þess hve borgin stendur hátt – mengun er alvarlegt vandamál og brún slykja er algeng yfir borginni – fjöldi heimilislausra mikill og áberandi – umferðin á annatímum hræðileg og það á bandarískan mælikvarða.