Allt endaði á besta veg þegar Fi 689 þota Icelandair lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli eftir að í ljós kom að eitt dekk af fjórum af hjólastelli vélarinnar hafði fallið af við flugtak. Lenti vélin vandræðalaust aftur eftir að hafa eytt bensínbirgðum sínum í rúmar tvær klukkustundir.

Vélin eftir vel heppnaða lendingu. Ef glöggt er skoðað má sjá að eitt afturhjóla hennar er alveg horfið
Þó engan veginn sé ljóst hvað átti sér stað; hvort hjólið hafi fallið af vegna fyrirstöðu á vellinum eða málmþreytu vekur óhappið upp spurningar um hvort mögulega sé aldur véla Icelandair sé farinn að segja til sín. Ekkert skal þó fullyrt um slíkt.
Meðalaldur flota Icelandair er átján ár sem þykir með því allra elsta í bransanum í Evrópu þótt vitaskuld megi finna flugfélög sem reka vélar eldri en það. Til samanburðar er meðalaldur flugflota norska lágfargjaldaflugfélagsins Norwegian tæplega sex ár, vélar SAS 12,7 ára, 9,5 ár hjá Air France og 12,8 ára eru vélar British Airways svo dæmi séu tekin.
Hefur Birkir Hólm Guðnason, forstjóri, látið hafa eftir sér að brýnt sé að endurnýja flotann og miðist núverandi áætlun félagsins við að það ferli hefjist 2015.






