Pistlar

Svona kemst bærinn þinn á kortið

  16/05/2012No Comments

Máltækið að koma einhverju á kortið hefur lengi verið notað hérlendis í merkingunni að koma einhverju á framfæri. En þeir einstaklingar sem þátt taka ár hvert í sérstakri þrívíddar módelsamkeppni Google samsteypunnar koma sannarlega einhverju á kortið í orðsins fyllstu.

Svona eiga bæjarkynningarnar að vera. Í þrívídd og flottri grafík sem nánast hver sem er getur gert heimavið

Þetta „eitthvað“ eru heimabæir viðkomandi en um þriggja ára skeið hefur Google haldið samkeppni um hver getur best gert sinn heimabæ úr garði í þrívíddarheimi í forritinu Google Earth sem margir Íslendingar kannast við. Sýnir samkeppnin hvað hægt er að gera þegar menn leggja höfuð í bleyti og hafa ánægju og kunnáttu í því sem þeir eru að gera.

En ekki þar fyrir að öll tól til þess arna fást á netinu og því getur hver sem er í raun útbúið þrívíddarmódel af sínum heimabæ eða öðrum stöðum ef því er að skipta án þess að hafa mikið annað en neista í brjósti.

Í öllu falli þá brúkar Google bestu þrívíddarteikningarnar raunverulega á Google Earth og þær geta svo sannarlega komið bænum þínum á kortið.

Hér að neðan eru allir þátttakendur sem komust í úrslit í ár en sigurvegarar urðu Spánverjarnir sem hönnuðu bæinn Getaría í Baskalandi.