Tíðindi

Góðkunningjar á lista yfir bestu staði ársins

  07/05/2012janúar 12th, 2014No Comments

Ef frá eru taldar borgirnar Siem Reap í Kambódíu og Bora Bora í Frönsku Pólónesíu eru mestmegnis gamalkunnar borgir heimsins sem komast á lista Tripadvisor yfir bestu áfangastaðina árið 2012 en sá listi var kunngjörður nýlega.

Ólíkt mörgum öðrum slíkum listum sem ákveðnir blaðamenn ferðatímarita taka sjálfir saman er listi Tripadvisor niðurstaða skoðanakannana meðal lesenda þess vefs en fyrir þá sem ekki vita er Tripadvisor vinsælasti ferðavefur heims. Hann ætti því að vera marktækari en margir aðrir og það hversu algengir hefðbundir toppstaðirnir eru gefur til kynna að svo sé.

Listinn á heimsvísu:

  1. LONDON, ENGLAND
  2. NEW YORK, BANDARÍKIN
  3. RÓM, ÍTALÍA
  4. PARÍS, FRAKKLAND
  5. SAN FRANCISCO, BANDARÍKIN
  6. MARRAKESH, MAROKKÓ
  7. ISTANBÚL, TYRKLAND
  8. BARCELÓNA, SPÁNN
  9. SIEM REAP, KAMBÓDÍU
  10. BERLÍN, ÞÝSKALAND
  11. CHICAGO, BANDARÍKIN
  12. FLÓRENS, ÍTALÍA
  13. BUENOS AIRES, ARGENTÍNA
  14. SIDNEY, ÁSTRALÍA
  15. BEIJING, KÍNA
  16. PRAG, TÉKKLAND
  17. LAS VEGAS, BANDARÍKIN
  18. BORA BORA, FRANSKA PÓLÓNESÍA
  19. SHANGHAI, KÍNA
  20. HONOLULU, BANDARÍKIN

Listinn á vef Tripadvisor hér.