Tíðindi

Nótt í kaupbæti í Berlín og Köln

  04/05/2012desember 24th, 2013No Comments

Sé fyrirhuguð styttri borgarferð til Berlínar eða Kölnar í Þýskalandi á allra næstu dögum og vikum getur verið nytsamlegt að grípa 3-fyrir-2 tilboð hótelbókunarvefsins HRS. Þannig fæst þriggja daga gisting á ágætum útvöldum hótelum en aðeins greitt fyrir tvær nætur.

HRS er ein hinna stóru hótelbókunarvéla á netinu og meðal annars sú hótelbókunarvél sem Icelandair notar. Á vef þeirra nú eru í boði allnokkur hótel í allnokkrum borgum heims á 3-fyrir-2 tilboði og munar um minna þegar meðalverð víða á sæmilegum hótelherbergjum eina nótt finnst vart undir 20 þúsund krónum í mörgum Evrópulöndum.

Gildir tilboð þetta reyndar einnig um gistingu á góðum hótelum á Mallorca, Mílanó, Dusseldorf, Vín og í Munchen. Á þá staði er þó ekki beint flug í boði héðan af klakanum.

Tilboðssíða HRS hér.