Tíðindi

Of feit til að fljúga – lögsækir flugfélagið

  04/05/2012No Comments

Kenlie Tiggeman var ekki alls kostar sátt þegar henni var vísað frá borði vélar flugfélagsins Southwest í Bandaríkjunum um nýliðna páska fyrir að vera of feit. Hún hafði jú náð af sér 54 kílóum á aðeins tveimur árum.

Geta flugfélög neitað feitlögnu fólki að fljúga greiði það ekki aukagjald fyrir tvö sæti? Úr því fæst skorið innan tíðar

Ungfrú Tiggeman hefur nú lögsótt flugfélagið Southwest en reglur þess flugfélags kveða á um að sé farþegi of feitur til að komast með góðu móti í eitt sæti með armpúðana niðri skuli greiða fyrir tvö sæti. Það gerði hún ekki og tók því óstinnt upp þegar flugþjónn um borð neitaði að leyfa henni að fljúga.

Mál þetta hefur vakið töluverða athygli vestanhafs enda mikið rætt þar um sérstakan skatt á feitlagna flugfarþega og stöku flugfélög, eins og Southwest, tekið þá ákvörðun að láta farþega sem nota fleiri en eitt sæti borga fyrir fleiri en eitt sæti.

Tiggeman hefur nú lögsótt Southwest og verður málið dómtekið í byrjun sumars. Segja lögfróðir málið hafa verulegt fordæmisgildi um allan heim.