Og þú sem hélst að þú kæmist aldrei ódýrt til Bangkok í Tælandi. Hinkraðu við í nokkra mánuði og ef allt gengur eftir er líklega hægt að komast fram og til baka milli Stokkhólms og Bangkok fyrir litlar 60 þúsund krónur.

Ys og þys út af miklu. Komist verður til Thaílands frá næsta hausti frá Stokkhólmi fyrir aðeins 60 þúsund krónur. Hallelújah!
Það er um það bil helmingi lægra verð en er almennt í boði frá Evrópu til höfuðborgar Tælands en þangað var komist um tíma ódýrast árið 2009 frá Evrópu fyrir 85 þúsund krónur báðar leiðir.
Nú hafa forráðamenn norska lágfargjaldaflugfélagsins Norwegian hent sprengju inn á markaðinn með tilkynningu um að frá og með næsta hausti verði slagurinn sannarlega tekinn við skandinavíska flugfélagið SAS. SAS hefur lengi vel verið eina norræna flugfélagið sem flýgur reglulega til borga í Asíu en það breytist í haust. Þá ætlar Norwegian að gera Stokkhólm að miðstöð sinni fyrir Asíuflug og reyndar bjóða ferðir til Bandaríkjanna líka.
Og séu prísarnir réttir er SAS sennilega búið að vera. Norwegian áætlar að allra ódýrasta fargjald í boði aðra leið til Bangkok frá Stokkhólmi verði um 1500 sænskar krónur sem yfirfært í íslenskar í dag er um 28 þúsund. Þannig kostar flug fram og til baka einungis um 60 þúsund krónur.
Enn betra tilboð verður til að byrja með til New York frá Stokkhólmi. Farið aðra leiðina mun ódýrast kosta 1000 sænskar krónur eða tæpar 19 þúsund íslenskar krónur miðað við gengi dagsins. Það er ekkert annað en snilld ef rétt er jafnvel þó ofan á það verð bætist aukakostnaður við farangur.
Bangkok og reyndar Tæland í heild sinni er upplifun hverjum sem þangað kemur og getur ritstjórn sannarlega mælt með túr þangað og fleirum en einum.
Allt um Bangkok. Allt um Hua Hin. Allt um Pattaya. Allt um Phuket.






