Sökum nauðlendingar farþegavélar Virgin flugfélagsins á Gatwick flugvelli í London fyrr í dag seinkar nokkuð vél Iceland Express sem þar átti að lenda. Var lent á Stansted flugvelli í staðinn.

Tafir á flugi Iceland Express vegna tímabundinnar lokunar Gatwick flugvallar vegna nauðlendingar þotu Virgin flugfélagsins
Þar bíða farþegar þangað til búið er að gefa grænt ljós á lendingar á Gatwick flugvelli að nýju en þá mun farþegum verða flogið á milli samkvæmt tilkynningu frá Iceland Express.
Mun þetta hafa í för með sér keðjuverkun og því seinkar vél Iceland Express heim til Keflavíkur sem þessari töf nemur.
Óvíst er hvað olli því að flugstjóri Airbus þotu Virgin á leið til Bandaríkjanna frá Gatwick óskaði eftir að fá leyfi til nauðlendingar skömmu eftir flugtak en vart varð reyks í farþegarými þotunnar við flugtak. Lenti hún aftur á Gatwick flugvelli án óhappa og engum varð meint af.






