Nýju flugfélögin Wow Air og easyJet þurfa að sanna sig á næstunni ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar Fararheill. Einungis 19 prósent þátttakenda segja að tilkoma þeirra auki samkeppni í flugi til og frá landinu.

EasyJet hefur hafið flug hingað til lands og Wow Air í startholunum en landinn sér ekki merki um aukna samkeppni að svo stöddu. Mynd af vef Kef
Forvitnaðist Fararheill um það hjá lesendum sínum hvort fólk væri orðið vart við aukna samkeppni með tilkomu easyJet og Wow Air. Þó starfsemi Wow Air sé komin á skrið er flug þó enn ekki hafið á félaginu en verð hafa verið auglýst um nokkurt skeið svo samanburður þar er mögulegur. Sömuleiðis er orðið ljóst hver verðlagning easyJet er og verður.
Í ljós kemur að fólk er efins. Aðeins 19 prósent þeirra 286 sem þátt tóku telja að tilkoma þessara tveggja flugfélaga hafi aukið virka samkeppni fram til þessa. 23 prósent segjast ekki merkja neina breytingu á fargjöldum frá því sem áður var en meirihlutinn, 58 prósent, segir það enn eiga eftir að koma í ljós hvaða áhrif nýju flugfélögin hafa.
Að mati ritstjórnar má glöggt merkja titring í flugheimum þó það sé kannski ekki ýkja áberandi út á við. Ljóst er að slagur er sérstaklega milli Iceland Express og Wow Air og verður væntanlega áfram.
Minna hefur farið fyrir Icelandair enda íslenskir farþegar mikill minnihluti þeirra farþega sem þeir flytja. Búast má þó við að þeir fari að vekja á sér meiri athygli hvað úr hverju nú þegar styttist í að lágfargjaldaflugfélagið Norwegian hefji flug milli Osló og Keflavíkur. Sú leið hefur lengi verið ein af helstu mjólkurkúm Icelandair og þótt SAS hafi einnig boðið þá leið um skeið hefur Icelandair að mestu náð að hanga á sínu.






