Tíðindi

Nett rós í hnappagat Icelandair

  13/04/2012No Comments

Flugfélagið Icelandair er í fríðum hópi tíu bestu flugfélaga heims sem enginn hefur flogið með að mati stórblaðsins USA Today.

Icelandair kemst á lista yfir tíu bestu flugfélög heims sem Bandaríkjamenn þekkja lítt sem ekkert til

Birtir blaðið grein um þau tíu flugfélög sem Bandaríkjamenn ættu að nýta sér í meira mæli en þegar er til að komast til og frá Evrópu og er Icelandair eitt þeirra sem þar komast á blað.

Blaðið segir það fyrirtaks þjónustu hjá flugfélagi að bjóða fólki á leið frá Bandaríkjum að stoppa sér að kostnaðarlausu á Íslandi á leið yfir Atlantshafið og þar með tækifæri til að skoða eitt fallegasta land heims.

Þó tekur blaðið einnig fram að þjónustustig Icelandair sé þó ekkert til að hrópa húrra fyrir. Þjónusta um borð og vélar félagsins séu lítt merkilegar miðað við farmiðagjald flugfélagsins.

Hin flugfélögin sem USA Today mælir með fyrir Bandaríkjamenn eru EVA Air, Turkish Airlines, Asiana Airlines, CityJet, Virgin Australia, LAN Airlines, Allegiant Air, Porter Airlines og Alaskan Airlines.

Ritstjórn hefur reynslu af flugi með sex af þeim tíu er USA Today mælir með og getur tekið undir að enginn verður ýkja svikinn af þjónustunni hjá Turkish, Alaskan, LAN, Asiana né EVA.