Strikið eða Hyde Park á lágmarksverði í sumar? Það er hægt grípi fólk tilboð Wow Air til London eða Kaupmannahafnaren það tilboð gildir um ferðir flugfélagsins júní, júlí og ágúst.

Hafir þú áhuga að fagna með Bretadrottningu sextugsafmæli hennar í sumar ráð að verða sér úti um miða til London í júní
Er prís Wow manna 14.900 krónur aðra leiðina til beggja borga og það á háannatíma. Enn ódýrara er að koma heim en Wow býður farið til baka á 14.684 krónur. Sem þýðir þá ferð fram og til baka fyrir 29.584 krónur alls. Tilboð þetta er þó aðeins í boði til hádegis á föstudaginn 30. mars.
Til samanburðar eru ódýrustu fargjöld Icelandair í júní á 19.780 krónur aðra leiðina samkvæmt vef þeirra í dag. Hjá Iceland Express fást miðar aðra leiðina í júní á 18.130 krónur. Fargjald aðra leiðina með easyJet sama mánuð fæst nú ódýrast á 15.843 krónur.
Ekki gleyma húllumhæinu í London í sumar. Bretadrottning heldur upp á 60 ára afmæli sitt á valdastóli með pompi og prakt í júní og í lok júlí hefjast þar sjálfir Ólympíuleikarnir 2012. Hafa skal þó jafnframt í huga að báðar borgirnar eru almennt dýrar á íslensk veski sökum gengis krónunnar.






