Flugfélagið Iceland Express tók upp á þeirri nýbreytni fyrir skömmu að fljúga ákveðnar dagsetningar beint frá Akureyri og Egilsstöðum til Kaupmannahafnar í sumar. Er þetta fantagott mál og í raun lágmarksþjónusta við þá sem búa úti á landi að þurfa ekki eilíft að spandera tíma og peningum í ferð suður til að flýja landið flugleiðis augnablik.
En miðað við að vegalengdir bæði frá Akureyri og Egilsstöðum til Kaupmannahafnar eru ívið styttri en frá Keflavík skýtur nokkuð skökku við að miðaverð nú í lok mars á þessum þremur flugleiðum er langódýrast frá Keflavík.
Vitaskuld má vera að eftirspurnin frá landsbyggðarstöðunum sé einfaldlega meiri en frá Keflavík og það hefur áhrif til hækkunar miðaverðs. Vart eru flugvallagjöld á Akureyri og Egilsstöðum hærri en í Keflavík svo varla er það ástæðan. Engu að síður er verðmunurinn nokkuð sláandi.
Þannig kostar ódýrasta fargjaldið aðra leiðina frá Egilsstöðum til Köben þann 13. ágúst 29.900 krónur meðan miðaverð sama dag frá Keflavík fæst fyrir 18.700 krónur. Þar munar 11.200 krónum þrátt fyrir að vegalengdin frá Egilsstöðum í beinni loftlínu sé 350 kílómetrum styttri en frá Keflavík. Þann 20. ágúst borga Egilsstaðabúar 25.900 aðra leiðina til Köben meðan sá sem fer frá Keflavík kaupir sinn miða á 16.700. Munurinn þar 9.200 krónur. Einungis þann 27. ágúst er eitthvað samræmi milli kostnaðar frá Keflavík og Egilsstaða til Kaupmannahafnar en jafnvel þá er 1.200 krónum dýrara að fljúga frá Egilsstöðum.
Frá Akureyri er flogið fimm sinnum beint til Kaupmannahafnar í sumar í júlí og byrjun ágúst. Mesti munur á fargjaldi finnst þann 30. júlí þegar farþegi frá Akureyri, sem er 200 kílómetrum styttra frá Köben í beinni loftlínu en Keflavík, greiðir ódýrast 33.900 krónur aðra leiðina meðan sunnanlands greiðir farþeginn 24.700 krónur. Munurinn 9.200 krónur. Aftur er munurinn minnstur 1.200 krónur þann 9. júlí þegar fargjald aðra leiðina fæst frá Keflavík fyrir 20.700 en frá Akureyri fyrir 21.900 krónur.
Engar ferðir, hvorki frá Akureyri né Egilsstöðum, eru þó nokkurn tíma ódýrari en frá Keflavík miðað við verð á heimasíðu Iceland Express kl.11 þann 28. mars 2012.
Heimasíða Iceland Express hér.
View Verð til Köben með Iceland Express þann 28.mars 2012 in a larger map







