Ekkert verður af fyrirhuguðu verkfalli flugliða hjá Iceland Express sem hefjast átti á miðnætti 29.mars. Félagsdómur hefur úrskurðað að boðað verkfall sé ólögmætt.

Hætta var á verkfalli allra flugliða Iceland Express en Félagsdómur hefur úrskurðað verkfallið ólögmætt
Áætlun flugfélagsins riðlast því ekki eins og hætta var á hefði Félagsdómur fallist á rök Flugfreyjufélags Íslands. Boðaði félagið verkfall allra flugliða Iceland Express fyrir viku síðan þar sem fyrsta flugfreyja í vélum tékkneska flugfélagsins CZA Holidays sem flýgur fyrir Iceland Express eru ekki íslenskar.
Krafðist félagið þess að því yrði breytt og hótuðu verkfalla ella. Nú er ljóst að af því verður ekki.
Liggur þó fyrir að um leið og þjálfun íslenskra flugliða um borð í vélum tékkneska flugfélagsins lýkur munu allir flugliðar um borð vera af íslensku bergi brotnir. Það gerist með sumrinu.






