Svo kann að fara að besti veitingastaður heims missi þann stimpil sinn innan tíðar. Veitingahúsabók Michelin telur allavega hinn danska Noma ekki þess virði að fá þrjár stjörnur.

Fjórir staðir í Kaupmannahöfn einni saman fá stjörnu í nýrri Michelin handbók. Relæ er einn þeirra er þar starfar einn fyrrverandi kokka Noma
Í gærkvöldi kom út nýjasta útgáfa veitingahúsabókar Michelin sem lengi hefur verið biblían í veitingahúsarekstri. Áhrif dóma þar hafa reyndar dvínað mikið undanfarin ár með tilkomu fleiri álitsgjafa bæði í riti og á neti en ekki síst vegna þess að nú fara margir eftir dómum almennings á miðlum eins og Tripadvisor.
Noma heldur tveimur stjörnum sínum sem merkir að þar sé framreiddur úrvals matur sem vert sé að gera sér far um að bragða en nær ekki þremur sem eiga við um veitingastaði sem óhætt er að gera sér sérstaka ferð eftir.
Danir hins vegar gefa ekkert eftir að öðru leyti. Einir fjórir veitingastaðir í Kaupmannahöfn fengu sínu fyrstu Michelin stjörnu. Það eru Den Røde Cottage í Klampenborg, Geranium við Per Henrik Lings Allé, Grønbech & Churchill í Ameliegade og Relæ við Jægersborggade.







