Iceland Express hefur ákveðið að bæta Köln við áfangastaði sína næsta sumarið og fara þannig í þráðbeina samkeppni við Wow Air sem áður hafði tilkynnt um reglulegar áætlunarferðir þangað.
Fram kemur í tilkynningu að flogið verði tvívegis í viku í allt sumar en fyrsta ferðin verður farin þann 5. júní eða nákvæmlega sama dag og fyrsta flug Wow Air fer í loftið til Kölnar. Hvort það er með ráðum gert eður ei skal ósagt látið.
Verður Köln þriðji áfangastaður Iceland Express í Þýskalandi en einnig er Frankfurt Hahn og Berlín á leiðakerfi flugfélagsins.
Ekki er borgin komin í bókunarkerfi Iceland Express þegar þetta er skrifað og því óljóst hvaða verð eru í boði en ferð með Wow Air 5. til 14. júní kostar ferðalanginn 48.533 krónur.
Flugtímar beggja eru svipaðir líka. Wow Air flýgur út 16.20 og 16.40 og heimflugið er 23.00 og 23:30 frá Þýskalandi. Iceland Express fer frá Keflavík 17.50 og til baka 00.30.






