Af þeim þremur flugfélögum sem bjóða reglulega áætlunarflug milli Keflavíkur og Osló í Noregi næsta sumarið er það norska flugfélagið Norwegian sem best býður á háannatíma í júlí. Skandinavíska flugfélagið SAS kemur næst meðan okkar eigið Icelandair rekur lestina hvort sem litið er til lægstu fargjaldanna eða þeirra hæstu.
Leitaði ritstjórn Fararheill uppi allra ódýrustu og allra dýrustu fargjöld til Osló með þessum þremur flugfélögum næstkomandi júlí sem er annatími í fluginu og jafnframt sá tími sem samkeppnin ætti að vera sem allra mest.
Og samkeppni reynist sannarlega vera til staðar. Sé litið til lægstu fargjalda sem í boði voru á heimasíðum allra flugfélaganna kl. 21 þann 11. mars er furðu lítill munur á kostnaði fram og til baka frá Keflavík. Norwegian, sem er lágfargjaldaflugfélag, reynist þannig aðeins bjóða rúmum þúsund krónur ódýrara flug en SAS og rúmum fjögur þúsund krónum ódýrara en Icelandair.
Þetta breytist reyndar verulega þegar einnig voru dregin saman dýrustu fargjöldin á almennu farrými á þessari sömu leið í sama mánuði.
Þar er Icelandair langdýrast svo miklu munar. Dýrustu gjöldin fram og tilbaka kostuðu samtals 92.920 krónur meðan allra dýrasta fargjald SAS var á 67.300 krónur. Norwegian bauð best í þessum flokki líka með 53.983 krónur.
Hér er eingöngu litið til verðs en ekki þjónustu annarrar. Flugfélögin bjóða misjafnlega þó halda megi fram að það sé SAS sem gerir best við sína viðskiptavini.






