Tíðindi

Lifi samkeppnin. Wow í tilboðsslaginn

  17/02/2012janúar 9th, 2015No Comments

Flugfélagið Wow Air býður nú í fyrsta sinn upp á sérstök skynditilboð til þriggja áfangastaða flugfélagsins í sumar. Er þar um að ræða Köln, Kaupmannahöfn og London.

Slæst Wow Air þar með í tilboðsslaginn sem er jákvætt því það bendir til að samkeppni sé á flugmarkaðnum og veitir ekki af að mati ritstjórnar Fararheill.

Tilboðsverðið til allra staðanna þriggja aðra leiðina er 12.900 en það tilboð er aðeins í boði til miðnættis í kvöld 17. febrúar. Ekki kemur reyndar fram á vef Wow hvaða dagsetningar um ræðir og verða því áhugasamir að leita sem er klárlega mínus.

Leit leiðir þó í ljós að til Kölnar er um að ræða flestar brottfarir félagsins og er til baka komist á góðu verði líka eða ódýrast á 11.673 krónur á völdum dagsetningum. Heildarverð fram og til baka því 24.573 krónur sem er vel viðunandi. Vert er að minna á að Sumarhátíðin í Köln, Kölner Sommerfestival, fer fram milli 9. júlí og 5. ágúst og er vel þess virði að njóta.

London er einnig í boði á sama verði samkvæmt auglýsingu Wow Air en leit leiðir í ljós að eingöngu finnst þetta verð yfir brottfarir til London í ágúst. Ódýrast fram og tilbaka er því komist fyrir 25.584 krónur á mann. Hægt er að ná í rassinn á Ólympíuleikunum með brottför til London snemma í ágúst.

Ritstjórn finnur hins vegar ekki far til Kaupmannahafnar á auglýstu fargjaldi fyrr en í lok ágúst. Með ódýrasta fargjaldi til baka kosta báðar leiðirnar 25.647 krónur. Ekkert þarf að hafa mörg orð um Köben á sumrin. Hún er ávallt sem önnur höfuðborg Íslands jafnvel þó danska krónan éti þá íslensku í morgunverð þessi dægrin.

Heimasíða Wow Air hér.