Aukagjöld hvers konar eru martröð hvers flugfarþega þessi dægrin. Gildir það hvarvetna í heiminum og eru þau teljandi á fingrum einhents manns þau flugfélög sem ekki smyrja ofan á allt sem þolir smurningu.
Það að vitaskuld líka við um Icelandair og Iceland Express sem fljúga til og frá Íslandi. Dagar víns, rósa og heitra máltíða horfnir og verða svangir farþegar að sætta sig við samlokur og sódavatn á flugferðum nú til dags.
Tók Fararheill.is saman í töflu kostnað sem ætíð velkist fyrir fólki áður en lagt er í langferð um himinskautin.
Vekur þar nokkra athygli að ef frá er talinn sá kostnaður sem Iceland Express tekur fyrir að farþegar velji sér sæti um borð er ekki að sjá að Iceland Express staðsetji sig sem lágfargjaldaflugfélag en Icelandair ekki.
Prísarnir og takmarkanir eru svipaðar hjá báðum flugfélögum og vakna kannski helst spurningar um verðlagningu á samlokum og bjór með tilliti til að um tollfrjálsa sölu er að ræða. Það sést ekki á verðinu.






