Ekki tók það langan tíma fyrir forráðamenn hins nýja Wow Air að bæta við áfangastöðum. Aðeins fjórum mánuðum eftir að flugfélagið tók til starfa er búið að ákveða að bæta Kaunas í Litháen við leiðakerfi Wow.
Kaunas er önnur stærsta borg Litháen en að líkindum lítt þekkt meðal Íslendinga en flug þangað mun hefjast þann 1. júní eins og flug til annarra áfangastaða Wow.
Borgin er aðeins í klukkustundar fjarlægð frá Vilníus, höfuðborg landsins, og sömuleiðis rúmlega klukkustund frá hinu rússneska yfirráðasvæði Kalingrad sem ótrúlega gaman er að skoða en sækja þarf um vegabréfsáritun til að komast þangað.
Sem kunnugt er skýrði Fararheill frá því fyrir skömmu að sala ferða flugfélagsins gengi framar vonum og spurning hvort fleiri nýjir áfangastaðir poppi upp áður en langt um líður.
View Kaunas í Litháen og nágrenni in a larger map






