Allir sem áhuga hafa að komast ódýrara í sumarfrí ættu að heimsækja vef eða skrifstofu Úrval Útsýn á slaginu tólf á mánudaginn kemur. Þá býðst viðskiptavinum að taka forskot á sæluna og kaupa ferðir til fimm áfangastaða á Spáni á sérstöku tilboðsverði.
Úrval Útsýn býður þá í sólarhring sérstök forskotstilboð til Albir, Benídorm, Mallorca, Almeríu og Tenerife og úttekt Fararheill.is leiðir í ljós að þar eru í boði góðir afslættir frá hefðbundnu verði.
Reyndar miðast öll uppgefin verðdæmi ferðaskrifstofunnar við fjögurra manna fjölskyldur; par eða hjón með tvö börn sem bæði eru á tveggja til ellefu ára aldri.
Samkvæmt Hagstofunni eru í heild 23 þúsund fjölskyldur í landinu með börn og ef við leikum okkur aðeins og göngum út frá þær eigi allar tvö börn á þeim aldri ná uppgefin tilboðsverð aðeins til 30 prósent landsmanna. Hefur Fararheill áður gagnrýnt íslenskar ferðaskrifstofur fyrir að auglýsa verð miðað við þessa fjölskyldustærð og þykir kjánalegt.
Engu að síður getur fjögurra manna fjölskyldan gert góð kaup í sólarhring á mánudaginn kemur eins og neðangreind úttekt sýnir fram á:
- Til Mallorca í viku með gistingu á Royal Playa de Palma kemst fjölskyldan ódýrast á 89.900 krónur á mann eða samtals 359.600 krónur. Ódýrasta hefðbunda fargjaldið á mann samkvæmt vef ÚÚ er 102.900 krónur eða samtals 411.600. Fjölskyldan sparar sér 52.000 krónur.
- Til Albir í viku með gistingu á Terrazas del Albir kemst fjölskyldan ódýrast á 89.900 krónur á mann eða samtals 359.600 krónur. Ódýrasta hefðbundna fargjaldið á mann samkvæmt vef ÚÚ er 94.331 króna. eða samtals 377.324 krónur. Fjölskyldan sparar sér 17.724 krónur.
- Til Almería í viku með gistingu á Pierre Vacances kemst fjölskyldan ódýrast á 89.900 krónur á mann eða samtals 359.600 krónur. Ódýrasta hefðbundna fargjaldið á mann samkvæmt vef ÚÚ er 101.153 krónur eða samtals 404.612 krónur. Fjölskyldan sparar sér 45.012 krónur.
- Til Tenerife í viku með gistingu á Parque de las Americas kemst fjölskyldan ódýrast á 99.900 krónur á mann eða samtals 399.600 krónur. Ódýrasta hefðbundna fargjaldið á mann samkvæmt vef ÚÚ er 113.156 krónur eða samtals 452.625 krónur. Fjölskyldan sparar sér 53.025 krónur.
- Til Benídorm í viku með gistingu á Paraiso Centro kemst fjölskyldan ódýrast á 89.900 krónur á mann eða samtals 359.600 krónur. Ódýrasta hefðbundna fargjaldið á mann samkvæmt vef ÚÚ er 95.178 krónur eða samtals 380.711 krónur. Fjölskyldan sparar 21.111 krónur.
Af þessu má sjá að allnokkur munur er á hversu mikill sparnaðurinn er. Alla munar um rúmar 50 þúsund krónur til Mallorca en hins vegar má deila um hvort sautján þúsund króna munur, 4.250 á mann, til Albir sé þess virði að elta.
Í auglýsingu ÚÚ hér má sjá að „tilboðið hefst stundvíslega á mánudagdag“ sem er skemmtilegt nýyrði.






