Það kemur ábyggilega einhverjum á óvart með tilliti til verulegra vandræða flugfélagsins á síðasta ári að flestir í nýrri könnun Fararheill kjósa helst að fljúga með Iceland Express af þeim flugfélögum er hér starfa.
Ekki er um afgerandi mun að ræða því 43,8 prósent velja helst Iceland Express meðan 41,9 prósent taka Icelandair framyfir önnur. Einungis 3,9 prósent nefna nýja flugfélagið Wow Air sem fyrsta kost meðan önnur 10,4 prósent vilja ekki fljúga með neinum af ofangreindum flugfélögum.
Að því gefnu að ekki sé um neitt svindl að ræða má leiða líkum að því að Iceland Express sé að bæta fyrir syndir fyrri ára en miklar tafir, seinkanir og vandræði önnur urðu ítrekað tilefni blaðaskrifa á síðasta ári.
Síðan þá hefur fyrirtækið hafið samstarf við annað flugfyrirtæki með betri vélar og bætt þjónustu aðra. Það virðist vera að skila sér samkvæmt þessari könnun og kannski ekki seinna vænna því nýr samkeppnisaðili, Wow Air, tekur til starfa innan tíðar og það á nokkrum af sömu flugleiðum og Iceland Express býður.
Eingöngu er um netkönnun að ræða og ber að taka niðurstöðum hennar með fyrirvara enda á engan hátt vísindaleg. Hún gefur þó vísbendingar og aldrei áður hafa svo margir tekið þátt í könnun Fararheill. Alls voru 904 atkvæði greidd sem jafnast á við stór úrtök í hefðbundnum skoðanakönnunum og þakkar ritstjórn kærlega fyrir góða þáttöku.






