Tíðindi

Sorgleg sjón á Giglio

  05/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Eitthvað óheyrilega sorglegt er við að skoða fréttaveituna Giglionews á ítölsku eynni Giglio og þá sérstaklega vefmyndavélar bæjarsins.

Ein þeirra sýnir höfnina í bænum og þar er næstum allt eins og það á að vera; ferjur og bátar fiskimanna koma og fara og fólk fær sér göngutúra eftir bryggjunni á góðviðrisdögum. Allt ósköp eðlilegt og indælt.

Þangað til fólk skoðar bakgrunninn. Þar liggur nefninlega flak skemmtiferðaskipsins Costa Concordia marandi í hálfu kafi eins og ekkert sé sjálfsagðara eins og sjá má hér.

Er líklega engin tilviljun að vefur Giglionews sé einn þeirra allra vinsælustu síðustu vikur enda mátti nánast fylgjast með strandi skipsins og björgunaraðgerðum í beinni gegnum vefinn. Það gerðu tugþúsundir um tíma.

Af skipinu er það að frétta að útgerðin, Costa Cruises, telur varla borga sig að reyna björgun skipsins. Það sé einfaldlega of kostnaðarsamt að bjarga því og lagfæra. Líklegt er að það endi á því að skipið verði bútað sundur þar sem það liggur og flutt þaðan í burt smám saman.

En öllu verri fréttir fyrir útgerð skemmtiferðaskipa berast frá yfirvöldum í Feneyjum. Þar íhuga menn að banna alfarið umferð slíkra skipa nálægt borginni vegna þess sem gerðist með Costa Concordia. Feneyjar eru langsamlega vinsælasti áfangastaður slíkra skipa á allri Ítalíu.