Kannski á engum að koma á óvart að fyrirtæki í íslenskri eigu skuli vera sakað um að bjóða starfsfólki sínu einhver allra verstu kjör sem sést hafa í flugrekstri í Danmörku.

Flugfélagið Primera sakað um að borga fólki sínu hræðileg laun

Flugfélagið Primera sakað um að borga fólki sínu hræðileg laun

Er þar um að ræða flugfyrirtækið Primera Air í meirihlutaeigu Andra Ingólfssonar. Það fyrirtæki sér meðal annars um flug fyrir hönd ferðaskrifstofunnar Heimsferðir sem einnig er í eigu Andra.

Hafa verkalýðssamtök starfsmanna í fluggeiranum í Danmörku hafið málaferli gegn íslenska fyrirtækinu sem hefur starfsstöð í Danmörku og fellur því undir dönsk lög.

Ætlar hluti flugmanna Primera í samúðarverkfall vegna þessa þann 1. febrúar næstkomandi að því fram kemur í nýju fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna en búið er að boða verkfall þann daginn vegna málsins.

Eru allir flugþjónar Primera Air á verktakasamningum og njóta því ekki sömu kjara og hefðbundnir launþegar. Það þykir ekki góð biblía í Danaveldi þar sem launþegasamtök eru afar sterk.

Það er meðal annars Primera Air sem mun sjá um flug Heimsferða til Mallorca og Billund í vor og sumar.