Tíðindi

Gordon Ramsay á tilboði

  19/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Maður er nefndur Gordon Ramsay og þykir færari en flestir í eldhúsinu. Það er ástæða þess að karlinn hefur opnað fjölda veitingastaða hingað og þangað til að græða á frægðinni enda hún fallvölt eins og annað í þessu lífi.

Það er þó alla jafna ekki gefið að snæða á einum af veitingastöðum hans. Kostar ódýr réttur árslaun verkamanns í Bangladess og ef fram heldur sem horfir árslaun verkamanns á Íslandi.

Tilboðsmiðillinn Lastminute.com býður fólki nú að setjast að snemmbúnum snæðingi á veitingastaðnum Maze sem Ramsay á og rekur og það fyrir öllu lægra verð en gengur og gerist.

Maze finnst á Brook stræti í London, lest að Bond stræti, og sé fólk á ferð í þeirri borg alveg á næstunni gefst hér tækifæri að kanna snilld Ramsay´s án þess að taka lífeyrissjóðslán.

Tilboð Lastminute.com hér en hafa verður hraðar hendur því efalaust eru margir um hituna.

Heimasíða Maze hér. Allt um London.


View Maze veitingastaður Gordon Ramsey í London in a larger map