Icelandair selur ferðir til Stokkhólms, Parísar og Boston næsta sólarhringinn á tilboðsverði með öðru hraðtilboði flugfélagsins á nýju ári.
Sem fyrr gilda tilboðin einungis næstu 24 stundir til hádegis 20. janúar og hendur verða því að vera hraðar. Um er að ræða ferðir í öllum tilvikum sem fara verður í febrúar eða mars.
Fargjald til Stokkhólms fæst aðra leiðina á 14.900 krónur og samtals 28.800 báðar leiðir. Aðeins dýrara er að fljúga til hinnar rómantísku Parísar. Flugið þangað kostar nú 16.900 og 34.600 samtals fram og til baka. Til Boston er komist næsta sólarhringinn fyrir 27.900 krónur aðra leið og 50.500 heim aftur.
Meðal skemmtilegra viðburða í Stokkhólmi í febrúar má nefna tónleika þýsku rokkaranna í Rammstein þann 17. febrúar. Vart er hægt að vera á rómantískari stað en í miðborg Parísar þann 14. febrúar á Valentínusardeginum enda rómantík í hverju einasta skúmaskoti borgarinnar. Þá er hægt að bregða sér á hinir bráðskemmtilegu sýningu Blue Man Group í Boston í febrúar.
Allt um Boston. Allt um París. Allt um Stokkhólm. Heimasíða Icelandair hér.






