Enn er um 50 manns saknað eftir að skemmtiferðaskipið Costa Concordia steytti á skeri við ítölsku eyjuna Giglio og er talið ólíklegt að fleiri finnist á lífi þó aldrei sé hægt að útiloka slíkt.
Enn hafa engar fregnir borist af því að Íslendingar séu um borð en alls voru 3.200 manns um borð þegar slysið átti sér stað á föstudaginn var.
Segir það sitt um hversu erfitt er að komast frá borði í stórum skemmtiferðaskipum að þó það liggi nánast í fjöruborðinu virðist fjölmörgum ekki hafa tekist að komast frá borði hjálparlaust.
Myndband sem tekið var af farþegum þegar óhappið átti sér stað sýnir sennilega það versta sem gerist við slíkar aðstæður; farþega að rífast um björgunarvesti meðan aðrir taka af skarið og henda sér frá borði.
Skipstjóri Costa Concordia hefur viljað meina að klettar þeir er skipið strandaði á hafi ekki verið merktir á sjókortum en það segir ítalska strandgæslan ekki vera rétt.
Skipperinn hefur jafnframt haldið því fram að hann hafi verið síðastur frá borði sem er galin yfirlýsing með tilliti til hversu margir hafa enn ekki fundist. Þá er líka spurning hversu mikil þörfin var á að komast frá borði því skipið marar aðeins í hálfu kafi en er ekki að fullu sokkið þó hættan á því sé fyrir hendi.
Hefur skipstjórinn verið handtekinn vegna málsins.






