Tíðindi

Tveir fyrir einn hjá Iceland Express

  28/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Ferðasalinn Iceland Express lætur til sín taka eftir að gerður var samningur við annan aðila en flugfélagið Astreus. Nú býður félagið tvo farmiða á verði eins til þriggja áfangastaða sinna.

Um er að ræða flug til Berlínar, London og Kaupmannahafnar og gildir tilboðið um ferðir fram að jólum og áramótum hvað viðkemur ferðunum til Berlínar. Gildir tilboðið aðeins fram til klukkan 9 á miðvikudaginn kemur.

Er þjóðráð að drífa sig í aðventuferð á þessum kjörum enda fargjöld til allra staðanna kringum 20 þúsund krónur með sköttum og gjöldum og því fæst flugið á mann á kringum tíu þúsund krónur. Sem er kostaboð og það ekki síst nú fyrir jólin sem jafnan er dýr tími til að ferðast.

Ekki þýðir að bóka tilboðið á bókunarvél Iceland Express heldur þurfa áhugasamir að senda póst á sertilbod@icelandexpress.is og virkja tilboðin þannig.