Hafi einhver efast um gildi alvöru samkeppni í utanlandsfluginu getur sá hinn sami lagt þær efasemdir til grafar. Úttekt Fararheill.is á ferð fjögurra manna fjölskyldu til London á háannatíma í júlí sýnir svart á hvítu að nýju flugfélögin tvö sem þangað fljúga skilja þessi gömlu eftir í rykinu.
Er reyndar samanburðurinn svo þeim gömlu í óhag að það er hvorki meira né minna en helmingsmunur á hæsta og lægsta fargjaldi þessara fjögurra einstaklinga sem halda til London þann 18. júlí og snúa til baka þann 29. júlí.
Er það langódýrast að fljúga með breska lágfargjaldaflugfélaginu easyJet samkvæmt þessu. Fjölskyldan kemst fram og til baka fyrir samtals 80.935 krónur. Hvort Iceland Express kemst upp með að kalla sig lágfargjaldaflugfélag má deila um en fljúgi sama fjölskylda með þeim greiðir hún 164.419 krónur fyrir herlegheitin. Þarna munar hvorki meira né minna en 83.484 krónum. Fjögurra manna fjölskyldan gæti þannig boðið annarri fjögurra manna fjölskyldu með sér til London með easyJet í stað þess að fljúga með Iceland Express.
Nýjasta flugfélag Íslands, Wow Air, tekst ennfremur að bjóða töluvert betur en bæði Iceland Express eða Icelandair. Fjölskyldan kemst með þeim til London og baka fyrir 130.334 krónur eða tæplega átján þúsund krónum ódýrara en Icelandair. Wow Air er þó töluvert frá easyJet.
Hafa skal í huga að aðeins er litið til verðs í þessum samanburði. Munur er á þessum flugfélögum og þjónustu sem þau veita. Verð eru lægstu verð sem fundust á vefum flugfélaganna í hádeginu 24. nóvember 2011. Í tilviki easyJet er flogið út þann 17. en ekki 18. júlí.






