Þó tilkynnt hafi verið um að bókanir flugfélagsins easyJet hafi farið fram úr björtustu vonum er enn ekki uppselt í neitt flug félagsins samkvæmt úttekt. Meðalfargjald flugfélagsins aðra leið til London í júlí er rétt rúmlega tíu þúsund krónur en fargjöld þeirra hækka ört því fleiri sem bóka.
Renndi ritstjórn Fararheill yfir bókunarvél flugfélagsins en þar sést glögglega hvort uppselt er í flug eða hvort fá sæti séu eftir á ákveðnum dagsetningum. Ekki reyndist það raunin enn sem komið er enda kannski langsótt þar sem skammt er síðan miðasala hófst.
Yfirlega yfir fargjöld easyJet frá Íslandi til Luton leiddi í ljós að meðalverð var um tíu þúsund krónur í júlí þegar hvað flestir Íslendingar leggja land undir fót. Ódýrasta fargjaldið aðra leið þann mánuð samkvæmt gengi dagsins fannst á 7.650 krónur en það dýrasta á 15.301 krónu eða helmingi dýrara.
Dýrara fargjaldið skjagar upp í verð Icelandair á sömu flugleið í sama mánuði sem er á 17.930 krónur. Fargjöld Iceland Express sömu leið finnast ódýrust á 18.830 krónur.






