Það eru merkilegar upplýsingar er fram koma í bréfi forstjóra Astreus flugfélagsins til starfsmanna vegna þeirrar ákvörðunar stjórnar að lýsa yfir gjaldþroti í morgun. Astreus er sem kunnugt er í eigu Pálma Haraldssonar eins og ferðasalinn Iceland Express.
Sendi Hugh Parry, forstjóri, það bréf snemma í morgun til allra starfsmanna sem missa eðli málsins samkvæmt störf sín. Parry þessi, einn af stofnendum Astreus, var aðeins búinn að starfa í einn mánuð áður en ákvörðunin um þrot var tekin.
Forvitnilegast er að sjá að undir stjórn Pálma Haraldssonar fækkaði þeim flugfélögum sem reiðubúin voru að gera langtímasamninga við Astreus um leigu véla fyrirtækisins úr fimm í eitt en slíkir langtímasamningar eru nauðsynlegir leigufyrirtæki á borð við Astreus. En fjögur fyrirtæki, þar á meðal stór og virt flugfélag á borð við bmi, sáu sinn hag vænstan í að hætta langtímasamningum sínum og var Iceland Express orðinn eini slíki langtíma leigutakinn.
Vekur þrot Astreus sérstaka athygli fyrir þá sök að Pálmi Haraldsson hefur áður sett flugfélag á hausinn. Það gerði hann með Sterling árið 2008. Þá var Pálmi með putta í rekstri og stjórn FL Group fyrir hrunið sem átti meðal annars Icelandair um tíma. Nú fer Astreus yfir um.
Ritstjórn dettur helst í hug til samanburðar hinn frómi Omar Baba, stjórnandi áttunda vinsælasta lágfargjaldaflugfélagi Englands; hinu skemmtilega flugfélagi Fly-Lo.






