Sem kunnugt er tafðist verulega flug Iceland Express til og frá Alicante á föstudaginn var og þurfti farandsalinn að senda alla farþega á hótel meðan gengið var úr skugga um að bilun í aðvörunarljósi væri ekki alvarleg. Samkvæmt heimildum Fararheill.is var þetta í sjöunda skiptið á árinu sem farþegar í Alicante eru sendir á hótel vegna mikilla tafa.
Kviknaði aðvörunarljós í vél félagsins á leið til Alicante á Spáni á fimmtudagskvöld og þurfti að lenda í Manchester í Englandi meðan farið var yfir bilunina. Í kjölfarið var fluginu aflýst og farþegar sendar á hótel, bæði í Manchester og líka þeir sem biðu í Alicante. Komust farþegar frá Alicante loks til Íslands átján tímum eftir áætlun.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum ritstjórnar mun þetta vera í sjöunda skiptið sem verulegar tafir verða á flugi frá Alicante sem er einn vinsælasti áfangastaður Iceland Express.
Engir farþegar flugfélagsins sem biðu vélarinnar í flugstöðinni í Alicante fengu tilkynningu gegnum síma um töfina þrátt fyrir að Iceland Express hafi ítrekað lofað að láta vita við slíkar aðstæður og senda skeyti um leið í farsíma farþega.
Þá braut flugfélagið reglur um tilkynningaskyldu sína hvað varðar að láta farþega vita af réttindum sínum við slíkar aðstæður en verði tafir lengur en tvær stundir skal láta alla farþega vita um hugsanlegar skaðabætur eða aðstoða aðra er farþegar eiga rétt á.






