Sex stikkprufur ritstjórnar Fararheill á ferðum Icelandair og Iceland Express í október leiða í ljós að flugfélögin skiptast nokkuð á um að bjóða bestu verðin.
Icelandair er oftar ódýrari til Kaupmannahafnar meðan Iceland Express býður betur til London.
Bar ritstjórn saman flugfargjöld fram og til baka til Kaupmannahafnar og London á sex mismunandi dagsetningum í næsta mánuði. Kemur þar berlega í ljós að mikill munur getur verið á sama farinu eftir því hvaða daga flogið er.
Athyglisvert er reyndar hve miklu munar á verðinu því ekki breytist fastur kostnaður flugfélaganna milli daga.
Er þannig munur á ódýrasta og dýrasta fargjaldi Iceland Express til Köben heilar 49.135 krónur sem er mestu munur á þeirri leið. Til London nemur mesti verðmunurinn 35.173 krónum eins og sjá má á meðfylgjandi töflu.
Helgast verðmunurinn af framboði og eftirspurn að einhverju leyti enda vita flugfélögin mætavel hvenær landann langar í styttri borgarferðir eða hvenær fólk í viðskiptaerindum þarf helst að komast heim á ný.
Ekki er endilega um allra hagstæðustu verðin að ræða heldur eingöngu stikkprufur teknar af handahófi og borið saman á vefum flugfélaganna kl. 13 þann 22. september. Miðað var við einn farþega á almennu farrými. Hafa skal í huga að verð taka örum breytingum.






