Bjórunnendur til sjávar og sveita gætu gert vitlausari hluti en taka frá 3. til 6. nóvember næstkomandi. Þá býður Icelandair upp á sérstaka bjórferð til Danmerkur þar sem fátt annað verður gert en drekka mjöðinn góða og jafnframt kynna sér framleiðslu danskra brugghúsa stórra og smárra.
Má reyndar fullyrða að margar ferðir Íslendinga til Danmerkur megi almennt flokkast sem bjórferðir því velflestir þeir sem bjór drekka láta hann nú ekki vera í ferðum sínum þangað.
En hér er annað og meira í gangi. Tveir fararstjórar, þaulkunnugir brugggerð og bjórþambi, munu leiða hópinn um danskar krár og brugggerðir en ferðin er farin í samstarfi við Bruggskólann hérlendis.
Verður meðal annars smakkað á Tuborg jólabjórnum þessa vertíðina og dagsferð farin til Sjálands til að kynna sér starfsemi örbruggverksmiðja.
Er þetta af hinu góða hvort sem mönnum finnst mjöðurinn góður eða ekki. Íslendingar vilja meira úrval ferða samkvæmt könnunum og sérstakar bjórferðir hafa hingað til ekki verið í boði hjá ferðaskrifstofunum þó fjöldi fólks hafi áhuga á.
Erlendis hins vegar eru starfræktir fjöldi bjórklúbba og er bjórferðaþjónusta ansi stór hluti af ferðum þeirra.
Heimasíða Icelandair hér.






