Veffyrirækið Golf in Spain býður allgóð tilboð í golfið þetta vorið en tólf ný tilboð má finna á vefsíðu þeirra nú.
Vænlegast er án efa vikudvöl á ágætu hóteli í smábæ nálægt Valencíu á Spáni en sjö hringir á Oliva Nova vellinum eru innifaldir í verðinu sem er 44 þúsund krónur miðað við gengi íslensku krónunnar nú. Oliva Nova þykir með betri völlum og hannaður af Seve Ballesteros.
Til samanburðar bjóða Heimsferðir sjö daga golfferð yfir sama tímabil á Costa Ballena fyrir 159.900 á manninn en vitaskuld er flugið innifalið í þeirri upphæð og munur getur verið á bæði hótelunum og umræddum völlum.
Engu að síður vel þess virði að skoða enda minnkar ekki golfbakterían þótt þynnist í veskinu og aukinheldur er hægt að finna flug frá Íslandi til Spánar og tilbaka á undir 40 þúsund krónum. Þannig sparast 70 þúsund krónur miðað við tilboð Heimsferða og munar um minna jafnvel þó meira sé haft fyrir hlutunum.






