Berlín er orðin of vinsæl. Hrúgur ferðamanna á öllum tímum ársins eru að breyta borginni til hins verra og fjárfestar, margir erlendir, kaupa upp hús í hefðbundnum íbúðargötum og leigja út herbergi í massavís til ferðamanna.

Sjarmi Berlínar liggur í sögunni og fólkinni í borginni. Sama fólkið er komið með upp í háls af miklum fjölda ferðamanna
Þessa þróun vilja nokkrir borgarbúar stöðva því haldi vinsældir Berlínar að aukast verður borgin ekki söm eftir og gildir það fyrir íbúana jafnt sem ferðamenn að því er fram kemur í grein í þýska tímaritinu Spiegel um málið.
Hefur hópur borgarbúa fengið sig fullsadda á þeim fjölda ferðamanna sem er á ferð í borginni og þá sérstaklega þeirri þróun að leggja heilu íbúðagöturnar undir gistihús. Er sú árátta einnig að hafa áhrif á íbúðaverð í borginni sem löngum hefur verið lágt.
Er tiltekið dæmi af hinni frægu götu Wilhelmstraβe í hinu vinsæla Mitte hverfi en þar eru nú skráð 257 gistihús í hverfi sem alls ekki var né er skipulagt undir slíka starfsemi.
Kaup erlendra aðila á slíkum húsum undir gistihús hefur haft í för með sér mikla hækkun á leiguverði í borginni og er engin tilviljun að í borgarstjórnarkosningum sem framundan eru er þetta eitt helsta baráttumálið.
Ritstjórn Fararheill getur sannarlega vottað að Berlín undanfarin ár hefur verið frábær heimsóknar og klárlega skemmtilegasta borg Evrópu síðustu fimm eða tíu árin. En það helgast ekki af háhýsum, gömlum byggingum eða hrúgum af ferðafólki heldur af fólkinu í borginni.
Athyglisvert er að Berlínarbúar eru ekki þeir fyrstu síðustu mánuði sem telja vinsældir borgar sinnar of miklar. Sams konar íbúasamtök hafa verið sett á stofn í Barcelóna á Spáni sem hafa sama markmið að taka borgina úr höndum ferðamanna eins og Fararheill.is greindi frá.







