Loks er orðið göngufært um borgina Pattaya í Tælandi á nýjan leik eftir að flóð kaffærði helstu ferðamannahluta borgarinnar um þriggja daga skeið.
Flóðin, sem hinir frægu gárungar hafa kallað syndaflóð með tilliti til helsta iðnaðar í borginni, hafa nú rénað en um tíma var metersdjúpt vatn á þeim götum sem næst liggja sjó en það eru sömu götur og alla jafna ertu troðnar af ferðamönnum alla daga ársins. Var þannig ófært í raun um hina víðfrægu Göngugötu, Walking street, þar sem ekki er farið eitt fótmál án þess að hitta fyrir vændiskonur og karlmenn sem kjósa návistir við þær.
Eru flóð í Tælandi lítið gamanmál því borgir þar eru langt í frá ýkja hreinlegar og því er vatn er safnast saman á götum ekki aðeins mengað heldur beinlínis hættulegt heilsunni.
Slíkt flóð eru algeng á Pattaya þar sem niðurföll stíflast auðveldlega sökum rusls og þarf á stundum ekki nema góða rigningu til að flæði yfir lægstu götur borgarinnar.






