Áætlun ferðasalans Iceland Express riðlast í dag sökum nauðlendingar vélar félagsins í nótt sem leið en lent var í Kanada sökum veikinda eins farþegans.
Kom vélin, sem var á leið frá New Jersey í Bandaríkjunum til Keflavíkur, tveimur klukkustundum síðar til lendingar í Keflavík af þessum sökum og mun það hafa keðjuverkandi áhrif á flug þeirrar vélar í dag.
Segir í tilkynningu frá ferðasalanum að líklega verði röskun á brottför frá Alicante í kvöld sökum þessa atburðar.






