Tíðindi

Tilviljun Moggans?

  16/09/2011desember 5th, 2014No Comments

Morgunblaðið segir frá því í dag að hópur kennara leiti nú leiða til að fá ferðasalann Iceland Express til að greiða fjögurra milljóna króna þóknun sem hótel eitt í Boston fer fram á.

Pantaði 60 manna hópur kennara á leið í námsferð herbergi á hótelinu í október en ekki verður úr ferðinni þar sem Iceland Express hætti skyndilega að fljúga til Boston í október.

Vill ferðasalinn ekki greiða þann kostnað sem kennarnir hafa orðið fyrir vegna niðurfellingar flugs til Boston sem engin einhlít skýring var gefin á af hálfu Iceland Express.

Hótelið vill engu að síður þóknun fyrir að halda eftir fjölda herbergja og leita kennaranir nú ráða hjá lögmanni en kennaranir telja víst að ábyrgðina beri flugfélagið. Því hafnar Iceland Express. Málið er alvarlegt enda búið að eyða miklum tíma og peningum í undirbúning ferðarinnar af hálfu kennaranna.

Það vakti hins vegar líka athygli ritstjórnar Fararheill hvar í Morgunblaðinu fréttinni af þessu máli er fyrirkomið. Eða frekar kannski hvaða fyrirtæki auglýsir á heilsíðu við hlið fréttarinnar af misgjörðum Iceland Express. Nefninlega helsti keppinauturinn Icelandair.

Tilviljun?