Ýmislegt bendir til að Kaupmannahöfn, okkar gamla höfuðborg, sé á hraðri leið með að verða allt of dýr fyrir íslenska ferðamenn með krónuna sína eina að vopni.
Fregnað hefur ritstjórn Fararheill að stakur bjór á Strikinu geti kostað svo mikið sem 1.600 krónur þessi dægrin. Góð máltíð á góðum dönskum veitingastað miðsvæðis með víni finnst ekki undir tólf þúsund krónum og nú kemur í ljós í nýrri könnun að meðalverð á hótelherbergjum í borginni er litlar 30.800 krónur.
Þarf ekki að fara í grafgötur né neinar aðrar götur um að ekki margir Íslendingar geta með góðu móti gist margar nætur í Kaupmannahöfn þegar meðalprísinn á hótelum er orðinn þetta hár nema fá ríkisstyrki til.
En þó meðalverð á hótelherbergi í Kaupmannahöfn sé í dýrari kantinum er hún kettlingur samanborið við margar aðrar vinsælar borgir heims. Þannig er meðaltalskostnaður á hótelum orðinn 38.400 krónur í París, 37.100 í Stokkhólmi, 35.700 í New York og 35.300 krónur í Osló.






