Það er aldeilis uppi á þeim typpið hjá Icelandair. Annan daginn í röð býður flugfélagið hraðtilboð og nú til fjögurra áfangastaða sinna en þau tilboð gilda sem fyrr aðeins næsta sólarhringinn.
Að þessu sinni er um að ræða tilboð til Washington og Minneapolis í Bandaríkjunum, til Hamborgar í Þýskalandi og Brussel í Belgíu.
Til bandarísku borganna fæst fargjald nú á 24.900 krónur aðra leið en ferðatíminn er misjafn. Fljúga verður til Washington milli 9. september og 20. nóvember en 1. september og 25. október til Minneapolis.
Prísinn aðra leið til Hamborgar er 16.900 krónur og ferðatíminn 5. ágúst til 9. september meðan greiða þarf 14.900 til Brussel 2. ágúst til 29. september.






