Nýbirtar tölur um stundvísi flugvéla Iceland Express benda til að flugfélagið hafi aðeins girt upp um sig buxurnar. Reyndust 60 prósent áætlunarferða þeirra í apríl og maí 2011 á réttum tíma sem er öllu betra en tölurnar fyrir desember og janúar þar sem aðeins 40 prósent véla þeirra voru á réttum tíma.
Eins og Fararheill hefur greint frá hefur Iceland Express, eða Iceland Surprise eins og gárungarnir kalla flugfélagið, verið með afleitar niðurstöður hvað stundvísi varðar. Og þótt stundvísi síðustu tveggja mánaða sé veruleg bæting til batnaðar er samt fjöldi farþega sem komast seint og illa og jafnvel alls ekki á áfangastað þennan sama tíma.
Þannig eru 14 prósent áætlunarferða félagsins seint á ferð, 9 prósent verulega seinar og önnur níu prósent ferða þeirra urðu seinar svo mörgum klukkustundum skipti. Fjögur prósent ferða til viðbótar var frestað samkvæmt tölum Flightstats sem heldur utan um slíka tölfræði hjá flugfélögum heims.
Betur má þó ef duga skal jafnvel þó að eldgosið í Grímsvötnum hafi haft áhrif á flug umræddan tíma. Sést það hvað best á tölum helsta samkeppnisaðilans, Icelandair, sem skilar 80 prósent farþegum sinna á áfangastað á réttum tíma sömu mánuði.






