Pistlar

Og hvað er eðlilegt við þetta?

  08/06/2011janúar 30th, 2014No Comments

Þessi dægrin telst það afskaplega gott ef íslensk ferðaskrifstofa getur boðið utanlandsferðir í viku eða tvær undir hundrað þúsund krónum og reyndar bærilegt líka þessi dægrin að finna bara flug fram og til baka frá landinu í sumar sem ekki kostar handlegg og fótlegg.

Ritstjórn Fararheill hefur fengið skeyti frá nokkrum einstaklingum sem telja að fregnir um græðgi ferðaskrifstofanna hérlendis sé fullmikið af því góða.

Af því tilefni tók ritstjórn saman nýjustu tilboð Travelzoo í Bretlandi en sá vefur tekur vikulega saman bestu tilboð ferðaskrifstofa þar í landi og birtir í heilu lagi. Tilboð þessarar viku má sjá hér að neðan og verð miðast við gengi krónu gagnvart pundinu þegar þetta er skrifað.

Hvetur Fararheill lesendur sína til að gera verðsamanburð við það sem best er í boði hérlendis. Má í kjölfarið spyrja sig hvað sé eðlilegt við þetta.

  • Vikuferð á fimm stjörnu „allt innifalið“ hóteli við ströndina í Tyrklandi: 88.217 krónur
  • Flug fram og til baka til Los Angeles í Bandaríkjunum: 103.812 krónur
  • Þriggja daga ferð til Dúbai með hálfu fæði á Atlantis hótelinu: 120.533 krónur
  • Tveggja daga dvöl á fimm stjörnu Druids Glen á Írlandi með inneign: 35.097 krónur
  • Vikudvöl með „allt innifalið“ á eynni Madeira í Portúgal: 66.661 króna
  • Tveggja daga lúxusferð til Prag í Tékklandi: 42.709 krónur
  • Vikudvöl við Gardavatn á Ítalíu með hálfu fæði: 70.379 krónur
  • Vikudvöl með „allt innifalið“ á ströndinni á Korfú í Grikklandi: 70.379 krónur