Um tíma í fyrra varð vart kveikt á sjónvarpi án þess að sjá miklar auglýsingar um dásemdir Keflavíkurflugvallar sem þá stærði sig af því að hafa verið valinn besti flugvöllur Evrópu 2009. Lítið fer fyrir auglýsingum um að völlurinn sé það ekki lengur.
Segir í ársskýrslu flugrekstrarfélagsins Isavia að Keflavíkurflugvöllur hafi endað í öðru sæti í sömu könnun árið 2010 en kannanir sem vísað er til eru gerðar af hálfu Airport Council International.
Ekkert finnst um þennan árangur Keflavíkurflugvallar á vef ACI um bestu flugvelli heims á liðnu ári. Er hann ekki á blaði yfir bestu flugvelli heims, Evrópu, né yfir smærri flugvelli. Tekið skal þó fram að ACI birtir afar takmarkaðar upplýsingar um val sitt.
Besti flugvöllur Evrópu á síðasta ári reyndist vera Alþjóðaflugvöllurinn á Möltu. Flugvöllur Porto í öðru sæti og Zurich völlur í því þriðja.






