Shakespeare gerði Kaupmanninn í Feneyjum heimsfrægan fyrir alllöngu síðan en kaupmenn í Flórens eru einnig að vekja verulega athygli og það alfarið á eigin spýtur fyrir græðgi.

Góður er ítalski gelatóinn en tæpur fimm þúsund kall fyrir eina kúlu helst til gróft samt. Mynd Doc Searls
Það eru engar fréttir að ítalskir ferðaþjónustuaðilar séu tækifærissinnar og sennilega fáir jafn grimmir tækifærissinnar og Ítalir nema ef vera skyldi Grikkir. Sjái þeir tækifæri til að féfletta ferðamenn er það tækifæri gripið um leið.
Það gerði íssölumaður einn á Ponte Veccio torginu í Flórens nýlega en sá seldi eina einustu kúlu af ljúffengum gelato ís sínum í hefðbundnu brauðformi á 4.600 íslenskar krónur. Það skjagar langleiðina upp í verð á únsu af gulli.
Hefði greyið íssölumaðurinn ekki fengið tvo þýska níska ferðamenn í heimsókn sem gerðu mál úr 9.200 króna reikningi sínum fyrir tvær kúlur af ís væri hann líklega enn að selja ísinn á þessu verði. Ítölsku blöðin komust í málið og hefur viðkomandi nú lækkað verð sín og fengið sekt í ofanálag.
Til að átta sig frekar á græðgi mannsins má geta þess að meðalverð á einni kúlu af gelato í Flórens er nær því að vera 700 krónur og þykir ekki ódýrt heldur enda Flórens með dýrari borgum Ítalíu.
Þar sem slíkt háttalag er langt í frá óeðlilegt víða í borgum Ítalíu er vissara að vita hvað varan kostar áður en pantað er. Samkvæmt lögum eiga kaupmenn í smærri verslunum í landinu að hafa uppi gildandi verðtöflu öllum stundum en það er nú allur gangur á því. Í öllu falli ráð að forvitnast um verð áður en pantað er.







